Icelandia
Icelandia
Icelandia

Ferðasérfræðingur - hópadeild

Ferðaskrifstofa Icelandia leitar að söludrifnum og skipulögðum einstaklingi með mikla samskiptahæfileika í starf ferðasérfræðings í hópadeild. Ferðasérfræðingur ber ábyrgð á tilboðsgerð og bókunum fyrir viðskiptavini og svarar hvers konar fyrirspurnum sem koma í söludeildina.

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða tímabundna stöðu fram á haust.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala og þjónusta með áherslu á hópa- og sérferðir.
  • Undirbúningur, framkvæmd og úrvinnsla ferða.
  • Önnur tilfallandi sölutengd verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af sambærilegum störfum er æskileg.
  • Víðtæk þekking á staðháttum á Íslandi ásamt framboði á þjónustu og afþreyingu.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði.
  • Mjög góð skipulags- og samstarfshæfni.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og skapandi verkefni í ört vaxandi vinnuumhverfi.
  • Frábær vinnuaðstaða og sveigjanleiki.
  • Líkamsræktarstyrkur og sálfræðistyrkur.
Advertisement published26. May 2025
Application deadline1. June 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Þekking staðhátta á Íslandi
Suitable for
Professions
Job Tags