Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Félagsráðgjafi í barnaverndarþjónustu Árborgar

Við leitum að framúrskarandi félagsráðgjafa sem er tilbúin að taka þátt í mikilvægum verkefnum hjá barnaverndarþjónustu Árborgar í afleysingu fram til lok ágúst 2025. Í sveitarfélaginu, sem telur tæplega 12 þúsund íbúa, er lögð áhersla á þverfaglegt samstarf og framsækið starf.

Félagsráðgjafi í barnaverndarþjónustu starfar í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga hjá fjölskyldusviði Árborgar. Sveitarfélagið vinnur eftir snemmtækri íhlutun með farsæld barna að leiðarljósi. Starfið felur í sér könnun á barnaverndartilkynningum skv. Barnaverndarlög nr.80/2002.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka barnaverndartilkynninga og skráning. 

  • Könnun barnaverndartilkynninga skv. þar til gerðum lögum og verkferlum.  

  • Samskipti við aðrar stofnanir við vinnslu barnaverndarmála. 

  • Þverfagleg samvinna á fjölskyldusviði Árborgar. 

  • Þátttaka í stuðningsteymi barns skv. lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi sem félagsráðgjafi. 

  • Þekking og reynsla af sambærilegu starfi.  

  • Reynsla og þekking á meginverkefnum velferðarþjónustu. 

  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum. 

  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi. 

  • Hæfni í þverfaglegri teymisvinnu. 

  • Þekking á eftirfarandi kerfum er kostur: OneCRM og Office365  

  • Hreint sakavottorð
Advertisement published17. January 2025
Application deadline30. January 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Type of work
Professions
Job Tags