Fagstjóri hjúkrunar hjá SÁÁ
Staða fagstjóra hjúkrunar hjá SÁÁ er laus til umsóknar. Um er að ræða nýtt starf.
SÁÁ er leiðandi í heilbrigðisþjónustu við fólk með fíknsjúkdóma og fjölskyldur þeirra og býður heildstæða meðferð yfir lengri tíma. Frábært tækifæri til að leiða mótun framtíðarsýnar og eflingu hjúkrunar innan SÁÁ með áherslu á gæði og árangur þjónustunnar.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, í fullu starfi.
Hjúkrunarvakt á sjúkrahúsinu Vogi sinnir sjúklingum í afeitrun og inniliggjandi meðferð auk lyfjameðferðar við ópíóíðafíkn í göngudeild. Unnið er í þverfaglegu teymi þar sem verið er að sinna fjölþættum vanda fólks og veitt er gagnreynd, einstaklings – og áfallamiðuð fíknimeðferð. Áhersla er lögð á góðan starfsanda og stöðugar umbætur. SÁÁ býður margvisleg tækifæri til að dýpka þekkingu sína á hjúkrun fólks með fíknsjúkdóm, eins og þjálfun og handleiðslu í áhugahvetjandi samtali og þverfaglega samvinnu með metnaðarfullu starfsfólki.
- Stjórna, skipuleggja og veita hjúkrunarþjónustu í samræmi við stefnu SÁÁ og lög um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012.
- Er tengiliður forstjóra við starfsemi og aðra heilbrigðisstarfsmenn á hjúkrunarsviði og starfar í umboði hans.
- Fagstjóri ber ábyrgð á hjúkrun í meðferð og þjónustu á hjúkrunarsviði og er leiðandi í mótun hennar.
- Fagstjóri hefur yfirsýn og umsjón með daglegum störfum starfsmanna á hjúkrunarsviði SÁÁ og skipuleggur og samhæfir verkefni þeirra.
- Fagstjóri skipuleggur og tekur þátt í gæða – og umbótastarfi, þjálfun starfsmanna og fræðslustarfi eins og við á.
- Hjúkrunarleyfi á Íslandi
- Framhaldsnám sem nýtist í starfi er æskilegt
- Reynsla af meðferðarstarfi og færni til að sinna fólki með fíknisjúkdóm og aðstandendum þeirra
- Þekking og áhugi á skaðaminnkandi hugmyndafræði
- Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
- Faglegur metnaður, jákvætt hugarfar, frumkvæði og færni til að vinna sjálfstætt
- Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta bæði í mæltu og rituðu máli
- Góð almenn tölvukunnátta
Sveigjanlegur vinnutími