

Ert þú upprennandi endurskoðandi?
Viltu öðlast dýrmæta reynslu hjá alþjóðlegu þekkingarfyrirtæki og og efla hæfni þína í endurskoðun og reikningsskilum?
Við leitum að drífandi og metnaðarfullum einstaklingum með brennandi áhuga á endurskoðun og reikningsskilum til að ganga til liðs við skrifstofu okkar í Reykjavík. Við bjóðum upp á tækifæri til að vaxa í starfi, öðlast starfsreynslu hjá alþjóðlegu þekkingarfyrirtæki og sveigjanlegt starfshlutfall með námi. Þetta starf er tilvalið fyrir þau sem stefna að, eru skráð í eða hafa lokið mastersgráðu í endurskoðun og reikningsskilum.
Viðkomandi mun starfa í fjölbreyttum verkefnum undir leiðsögn sérfræðinga í endurskoðun og reikningsskilum og mynda náin tengsl við bæði löggilta endurskoðendur og aðra nema í endurskoðun.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir þig til að vaxa og þróast sem fagmanneskja í spennandi umhverfi.
- Þátttaka í undirbúning og framkvæmd endurskoðunar og reikningsskila fjölbreyttra fyrirtækja, stofnana, sveitarfélaga og annarra lögaðila
-
Þátttaka í uppgjörum og uppsetningu ársreikninga
-
Önnur tengd og tilfallandi störf
-
Bachelor gráða í viðskiptafræði, hagfræði eða annarri tengdri námsgrein
-
Ástundun meistaranáms í reikningsskilum og endurskoðun, eða að hafa lokið slíku námi, er kostur
-
Starfsreynsla í skrifstofuumhverfi og bókhaldi er kostur
-
Metnaður til að ná árangri í starfi
-
Skipulagshæfni og vönduð vinnubrögð
-
Hæfni til að vinna í hóp
-
Sjálfstæði, frumkvæði og sterk samskiptahæfni













