Síminn
Síminn
Síminn

Ert þú öflugur markaðssérfræðingur?

Við leitum að metnaðarfullum og reynslumiklum markaðssérfræðingi til að ganga til liðs við öflugt markaðsteymi Símans. Þetta er frábært tækifæri fyrir einstakling með sterka innsýn í gerð markaðsáætlana í takt við markaðsstefnu, greiningarhæfni og skilning á samspili markaðs og sölu til að hafa raunveruleg áhrif á árangur fyrirtækisins.

Hjá Símanum færðu tækifæri til að taka þátt í spennandi verkefnum þar sem nýsköpun, þjónusta og árangur eru í fyrirrúmi. Við bjóðum upp á kraftmikið starfsumhverfi, gott andrúmsloft og tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á markaðsstarf félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun og framkvæmd markaðsáætlana í samræmi við markaðsstefnu Símans
  • Greining markaðsgagna og nýting gagna til að hámarka árangur herferða
  • Samstarf við söluteymi og aðrar deildir til að tryggja samræmda nálgun í markaðs- og sölumálum
  • Eftirfylgni og árangursmat á markaðsaðgerðum
  • Þátttaka í mótun vörumerkisins og framsetningu þess á öllum snertiflötum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í markaðsfræði, viðskiptafræði eða tengdu fagi er nauðsynleg
  • Umtalsverð reynsla af markaðsstarfi, helst bæði í stefnumótun og framkvæmd
  • Reynsla af greiningu markaðsgagna og notkun gagna í markaðsstarfi
  • Góður skilningur á samspili markaðs- og sölumála
  • Góð hæfni í að skipuleggja, forgangsraða og vinna markvisst að sameiginlegum markmiðum
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
Fríðindi í starfi
  • Árlegur líkamsræktarstyrkur 
  • Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar 
  • Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða 
  • Gleraugnastyrkur 
  • Afslættir af vörum og þjónustu Símans 
  • Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu 
  • Námsstyrkir
Advertisement published3. November 2025
Application deadline16. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.Market analysisPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Market researchPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags