

Ert þú lausnamiðaður sérfræðingur í upplýsingatækni?
Sómi ehf. leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í fjölbreytt starf á sviði upplýsingatækni. Viðkomandi mun hafa umsjón með upplýsingatækniumhverfi félagsins, þjónusta aðra starfsmenn og taka virkan þátt í þróun og innleiðingu nýrra tæknilausna.
Starfið hentar vel einstaklingi sem býr yfir góðri þekkingu á upplýsingatækni, hefur ríka þjónustulund, ánægju af fjölbreyttum verkefnum og vill hafa áhrif á þróun tæknimála hjá fyrirtækinu.
Um framtíðarstarf er að ræða. Vinnutími er alla virka daga frá kl. 08:00 til 16:00.
· Umsjón með upplýsingatækniumhverfi félagsins
· Samvinna og samskipti við birgja og þjónustuaðila á sviði upplýsingatækni
· Aðstoð og þjónusta við starfsmenn og notendur upplýsinga- og tölvukerfa
· Þróun og innleiðing nýrra tæknilausna og sjálfvirknivæðing
· Viðhald, endurbætur og uppbygging á öllu sem snýr að upplýsingatækni
· Aðstoð við gerð fræðsluefnis
· Tækifæri til að móta framtíðar upplýsingatækniumhverfi félagsins
· Önnur tilfallandi verkefni sem yfirmaður leggur til, meðal annars á sviði gæða- og öryggismála
· Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi, t.d. á sviði kerfisstjórnunar eða tölvunarfræði
· Framúrskarandi almenn tæknikunnátta er skilyrði
· Reynsla og áhugi á notkun gervigreindar
· Reynsla af hugbúnaðarþróun kostur
· Framúrskarandi kunnátta í íslensku og ensku er skilyrði
· Sjálfstæð, öguð og skipulögð vinnubrögð
· Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
· Frumkvæði, útsjónarsemi og lausnamiðuð hugsun
· Hæfni til að forgangsraða verkefnum, vinna undir pressu og bregðast fljótt við óvæntum atburðum
Sómi er rótgróið fyrirtæki og leiðandi á sínu sviði. Sómi var stofnað árið 1978 og hefur síðan þá lagt mikið kapp á að bjóða landsmönnum upp á ferskar vörur og góða þjónustu. Sómi hefur einsett sér að vera í fararbroddi á sínum sviði. Það er einungis mögulegt ef allir starfsmenn Sóma leggjast á árarnar og vinna saman sem öflugt teymi. Hjá Sóma starfa um 100 manns. Gildi fyrirtækisins eru: Ferskleiki og stöðug gæði.
Hæfir einstaklingar eru hvattir til að sækja um, óháð kyni, kynþætti, uppruna eða öðrum bakgrunni.
English
Icelandic










