

Ert þú frábær rafvirki? Þráirðu stöðugleika með fjölbreytni?
Vegna góðra verkefnastöðu þurfum við að bæta í frábæra starfsmannahóp okkar. Við leitum að kraftmiklum og frábærum rafvirkjum til að viðhalda, efla og styrkja almennu raflagna deildina okkar. Fjölbreytt verkefni á sviði nýlagna, endurnýjunar og þjónusta við stærri viðskiptavini.
Frábærir rafvirkjar búa yfir ríkri reynslu í rafvirkjun, vinna vel í teymi og eru fagmenn í fingurgóma - Ef það ert þú, þá er þetta staða fyrir þig.
Sterk verkefnastaða, fjölbreytt verkefni, skemmtilegt starfsumhverfi og frábærir samstarfsmenn gera þessa stöðu að framtíðarstarfi fyrir réttan einstakling. Mikil tækifæri í að þróast í starfi.
Sveinspróf í rafvirkjun er alltaf kostur og starfsreynsla í rafvirkjun skilyrði.
Rafmiðlun er einnig með virkilega öflugt starfsmanna félag sem heldur reglulega viðburði og sér fyrir skemmtun utan og innan vinnu.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Vilborg Mannauðsstjóri, [email protected]
-
Fjölbreytt verkefni i rafmagni
-
Fjölbreyttir staðir
-
Almenn rafvirkjavinna
-
Framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini
-
Sveinspróf skilyrði (æskilegt)
-
Reynsla í rafvirkjun
-
Sjálfstæð vinnubrögð
-
Geta unnið í teymi
-
Vandvirkur og nákvæmur í vinnubrögðum
-
Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
-
Bílpróf nauðsynlegt
-
Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
-
Stundvís og samviskusemi
-
Vinnufatnaður
-
Hádegismatur greiddur að hluta
Icelandic
English










