Rafmiðlun
Rafmiðlun
Rafmiðlun

Er öryggi og fagmennska þitt fag? komdu í úttektir á neyðarlýsingu.

Þjónustudeild Rafmiðlunar leitar að metnaðarfullum úttektarmanni/konu sem vill takast á við úttektir á neyðar- og leiðarlýsingu með okkur, þar sem hver dagur er frábrugðinn þeim næsta. Ef öryggisvitund og skýrslugerð heilla þig og þú vilt takast á við fjölbreytt verkefni, þá er þetta starfið fyrir þig.

Virkilega góð verkefnastaða ásamt frábærum samstarfsmönnum gerir þetta starf að góðu framtíðarstarfi, þar sem einstaklingur fær tækifæri og sveigjanleika til að vinna sjálfstætt, axla ábyrgð á verkum sínum og vaxa innan fyrirtækisins.

Við leitum helst að einstaklingi sem talar og skrifar íslensku og getur hjálpað okkur að viðhalda og byggja upp okkar trausta tengslanet við viðskiptavini okkar. Æskilegt er að viðkomandi sé með sveinspróf í rafvirkjun, þó það sé ekki krafa. Einnig er kostur ef einstaklingur hefur reynslu af úttektum, þekkir verklag þeirra og úttektarforrit, hefur þekkingu á neyðarlýsingu og kann á snjalltæki.

Við þjónustum meðal annars verslanir, fasteignafélög, bakarí, banka, byggingarfélög og margt fleira.

Rafmiðlun er einnig með virkilega öflugt starfsmannafélag sem heldur reglulega viðburði og sér um skemmtun innan sem utan vinnu.

Boðið er upp á skemmtilegt og fjölbreytt starf, frábæra samstarfsmenn, krefjandi og áhugaverð verkefni, frelsi til að takast sjálfstætt á við verkefni, sveigjanleika í vinnu og öflugt starfsmannafélag.

Ef þú hefur áhuga á að efla deildina með okkur eða ef spurningar vakna, endilega hafðu samband.

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Vilborg, Mannauðsstjóri, [email protected]

Sigþór Vopni, Þjónustustjóri [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina 

  • Fjölbreyttir vinnustaðir 

  • Neyðarlýsing prófun og lagfæring 

  • Bilanagreining 

  • Merking á neyðarljósum 

  • Skýrslugerð 

  • Styrkja og efla verkferla úttekta 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf æskilegt 

  • Reynsla í rafvirkjun skilyrði 

  • Reynsla við úttektir skilyrði 

  • Reynsla í neyðarlýsingu æskilegt 

  • Sjálfstæð vinnubrögð 

  • Jákvætt og lausnamiðað hugarfar 

  • Bílpróf nauðsynlegt  

  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum 

  • Stundvís og samviskusemi  

  • Íslensku kunnátta æskileg  

Fríðindi í starfi
  • Vinnubíll 

  • Vinnufatnaður 

  • Hádegismatur greiddur að hluta 

  • Vinnusími  

  • Sveigjanleiki í vinnu 

  • Fjölbreytni í verkum 

 

Advertisement published15. May 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Type of work
Professions
Job Tags