Fangelsismálastofnun
Fangelsismálastofnun
Fangelsismálastofnun

Embætti deildarstjóra hjá Fangelsismálastofnun ríkisins

Fangelsismálastofnun ríkisins heyrir undir dómsmálaráðuneytið. Stofnunin fer með yfirstjórn fangelsismála, m.a. umsjón með rekstri fangelsa og tryggir að fullnusta refsinga fari fram með öruggum og skilvirkum hætti í samræmi við lög um fullnustu refsinga nr. 15/2016. Áhersla er lögð á vellíðan í starfi og jákvæðan starfsanda auk þess sem tryggja þarf að starfsfólk búi yfir þeirri hæfni sem þarf til að ná árangri í krefjandi starfsumhverfi. Hjá stofnuninni starfa alls um 160 starfsmenn, flestir fangaverðir, á fimm mismunandi starfsstöðvum, fjórum fangelsum og skrifstofu sem staðsett er á Seltjarnarnesi.

Í Fangelsinu Litla-Hrauni starfa rúmlega 70 starfsmenn en fangelsið er stærsta fangelsi landsins. Deildarstjóri heyrir undir forstöðumann Fangelsisins Litla-Hrauni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórn og rekstur Fangelsisins Litla-Hrauni í samráði við forstöðumann. 
  • Mönnunar- og ráðningarmál í samráði við mannauðsteymi.
  • Ákvarðanir sem lúta að réttindum og skyldum fanga í afplánun fangelsisins í samráði við forstöðumann og Fangelsismálastofnun.   
  • Þjálfun, upplýsingamiðlun og ráðgjöf. 
  • Samræming vinnubragða og verklags. 
  • Þátttaka í stefnumótun og gerð verkferla.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Fangavarðamenntun er skilyrði.      
  • Önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur. 
  • Við ráðningu verður horft til starfsreynslu sem nýst getur í starfi. 
  • Reynsla af starfi fangavarðar er skilyrði. 
  • Reynsla af stjórnun er skilyrði. 
  • Reynsla og þekking á stjórnsýslu er skilyrði. 
  • Reynsla og þekking af fullnustukerfinu er skilyrði. 
  • Forysta og hæfni til að leiða fólk og stjórna verkefnum. 
  • Frumkvæði, drifkraftur, metnaður og jákvætt og lausnamiðað hugarfar. 
  • Samskiptafærni og vilji til þess að vinna með fólki.
  • Skipulagsfærni og nákvæmni í vinnubrögðum.
  • Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti. 
Advertisement published12. December 2024
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Fangelsið Litla-Hrauni
Type of work
Professions
Job Tags