Leikskólinn Sunnufold
Leikskólinn Sunnufold
Leikskólinn Sunnufold

Deildastjóri í Sunnufold

Við leitum að kraftmiklum og skapandi kennara sem er tilbúinn að koma með okkur í spennandi vegferð í Sunnufold. Við erum í skemmtilegri framþróun og viljum fá til liðs við okkur öflugan liðsmann í stjórnendateymi okkar. Halda gleðinni á lofti og styrkja trú barnanna á eigin getu.

Í Sunnufold leggjum við mikið upp úr jákvæðu og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem liðsheild einkennir starfsmannahópinn okkar. Við trúum því að ánægja og vellíðan sé forsenda þess að blómstra, hvort sem það er í leik og námi barna eða í starfi fullorðinna. Leikskólinn er fimm deilda og með tvær starfsstöðvar í Foldunum - Frosta og Loga. Við njótum okkar í náttúru garðanna okkar auk þess sem við nýtum okkur það fallega umhverfi sem Grafarvogurinn býður upp á. Við erum sterkur hluti af samfélagi okkar og erum í góðu samstarfi skólana og frístundastarfið í hverfinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna þar sem leikur er uppspretta lærdóms.
  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og starfsáætlun.
  • Stjórnun, skipulagning og mat á starfi á deildarinnar.
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna á deildinni.
  •  Er í stjórnendateymi leikskólans og tekur þátt í gerð skólanámskrár, starfsáætlunar og þróunarverkefnum.
  • Ber ábyrgð á upplýsingagjöf og samvinnu við foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði, gleði og sköpun í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Advertisement published5. February 2026
Application deadline19. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Frostafold 33, 112 Reykjavík
Logafold 18, 112 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Teacher
Professions
Job Tags