Húsasmiðjan
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan

Deildarstjóri málningardeildar í Húsasmiðjunni Akureyri

Ertu málari eða hefur starfað við málningu og langar að nýta þekkingu þína á annan hátt?Hjá Húsasmiðjunni færðu tækifæri til að vinna með fagfólki, veita ráðgjöf og hjálpa bæði einstaklingum og fagfólki að velja réttu lausnirnar.

Við leitum að öflugum liðsmanni með góða þekkingu á málningu og málningarvinnu til að leiða málningadeild Húsasmiðjunnar á Akureyri. Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem hefur starfað við málningu eða lokið iðnmenntun í greininni og vill nýta fagþekkingu sína í ráðgjöf og sölu.Menntun eða reynsla í málningariðn er mjög mikill kostur. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að miðla fagþekkingu sinni og veita viðskiptavinum bæði fagfólki og einstaklingum framúrskarandi ráðgjöf.

Helstu verkefni:

  • Fagleg ráðgjöf um málningu og tengdar vörur, almenna yfirborðsmeðferð og efnisval
  • Sala og þjónusta við einstaklinga
  • Sala, sókn og ráðgjöf við málara og annað fagfólk
  • Umsjón með málningardeild
  • Pantanir og birgðastýring
  • Framsetning vara og útstillingar
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hæfniskröfur:

    • Menntun eða reynsla í málningariðn er mjög æskileg.
    • Góð þekking á málningu, yfirborðsmeðferð og efnisvali.
    • Metnaður fyrir því að veita faglega ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu.
    • Góð samskiptafærni og hæfni til að byggja upp traust við einstaklinga og fagmenn.
    • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
    • Áhugi á sölu og þjónustu.
    • Stundvísi og ábyrgð í starfi.
    • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Fríðindi í starfi
  • Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla
  • Aðgangur að orlofshúsum
  • Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur
  • Afsláttarkjör í verslunum okkar
Advertisement published4. August 2026
Application deadline23. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Freyjunes 1, 603 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags