Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri á unglingastigi - Hraunvallaskóli

Hraunvallaskóli auglýsir eftir deildarstjóra á unglingastigi

Skólinn hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Segja má að nemendur hefji skólagöngu sína átján mánaða í Hraunvallaskóla og ljúki henni við sextán ára aldur. Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.

Umsækjandi þarf að hafa leiðtogahæfileika og góða og víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn. Deildarstjóri situr í stjórnunarteymi skólans. Hann er faglegur leiðtogi og stýrir starfi á unglingastigi (8.-10. bekk).

Helstu verkefni og ábyrgð:

• Stýrir daglegu starfi í unglingadeild í samvinnu við skólastjórnendur og kennara.

• Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk

• Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk

• Vinnur samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.

• Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

• Kennsluréttindi (Leyfisbréf fylgi umsókn)

• Góðir skipulagshæfileikar

• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

• Hæfni í mannlegum samskiptum

• Reynsla og/eða þekking á SMT-skólafærni æskileg

• Metnaðarfull skólasýn og brennandi áhugi að starfa í skapandi umhverfi

• Stundvísi og samviskusemi

• Þekking og færni á teymisvinnu

Umsóknarfrestur er til og með 17. maí 2024

Við ráðningu er gerð krafa um hreint sakavottorð.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024. Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru öll kyn hvött til að sækja um starfið.

Advertisement created3. May 2024
Application deadline17. May 2024
Language Skills
IcelandicIcelandicVery good
Location
Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags