

Deildarstjóri á íbúðarkjarna við Skúlagötu
Auglýst er eftir öflugum, skipulögðum og framsæknum einstakling í stöðu deildarstjóra á íbúðarkjarnann við Skúlagötu 46. Deildarstjóri vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks til að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra. Auk þess á deildastjóri að starfa í samræmi við Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, gildandi lög og reglugerðir málefnum fatlaðs fólks og félagsþjónustu og önnur viðeigandi lög. Á Skúlagötu er unnið eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf með markmiðunum að hámarka virkni og færni íbúa. Deildarstjóri leggur sig fram við að skapa öfluga liðsheild og stuðla að einstaklingsmiðuðum vinnubrögðum í þágu þjónustunotenda.
Um er að ræða 100% stöðu deildastjóra sem vinnur að hluta til í stjórnun og fagvinnu og að hluta til í beinni þjónustu á dag-, kvöld- og helgarvöktum.
- Hefur umsjón með framkvæmd og skipulagi á daglegri þjónustu við einstaklinga þar með talið daglegum störfum starfsmanna og forgangsröðun verkefna í samráði við forstöðumann.
- Hvetur og styður einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
- Styður einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald vinnu og samfélagsþátttöku.
- Sinnir umönnun og er vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan einstaklinga og aðstoðar þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
- Styður einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. rækta félagstengsl, stunda afþreyingu, sækja menningarviðburði og íþróttir.
- Er leiðandi þegar kemur að því að vinna eftir verklagi og hugmyndafræði starfsstaðar.
- Ber ábyrgð á gerð og endurmati einstaklingsáætlana og/eða einstaklingsbundinna þjónustuáætlana í samvinnu við einstaklinga, starfsmenn og forstöðumann.
- Sinnir fræðslu og leiðbeinir starfsfólki, samræmir vinnubrögð og þróar verkferla í samráði við forstöðumann.
- Tekur þátt og stýrir teymisvinnu eða þróunarstarfi sem honum er falið af forstöðumanni.
- Veitir aðstoð við meðferð fjármuna í samráði við einstaklinga og forstöðumann.
- Tekur þátt í og stýrir samstarfi við fagaðila, aðra starfsmenn, einstaklinga og aðstandendur.
- Leysir af forstöðumann og er hluti af stjórnunarteymi starfsstaðar.
- Stuðar að jákvæðum samskiptum við þjónustunotendur og annað samstarfsfólk.
- Tryggir að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs og Reykjavíkurborgar
- Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
- Háskólamenntun á sviði heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísinda sem nýtist í starfi.
- Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki með ólíkar stuðningsþarfir .
- Þekking og reynsla af sambærilegum störfum.
- Þekking og reynsla af vinnu með hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, sjálfstæðs lífs og valdeflandi stuðning.
- Leiðtogafærni og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Íslenskukunnátta B2 (samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).
- Ökuréttindi B.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- 36 stunda vinnuvika
- Heilsustyrkur
- Sundkort að sundlaugum Reykjavíkurborgar
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur



















