Leikskólinn Furuskógur
Leikskólinn Furuskógur
Leikskólinn Furuskógur

Deildarstjóri

Vilt þú hafa áhrif á framtíð ungra barna?

Í leikskólanum Furuskógi er laus staða deildarstjóra, frábært tækifæri!

Skemmtilegur og góður starfsandi


Laus er staða deildarstjóra í leikskólanum Furuskógi í Fossvogi. Leikskólinn er starfræktur í tveimur húsum í Fossvoginum og liggur vel við samgöngum. Einkunnarorð skólans eru Gleði, Vinsemd og Virðing, og er áhersla lögð á lýðræði, sköpun, útinám og lífsleikni í starfi með börnunum. Skólinn hlaut Regnbogavottun í apríl 2022.


Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.


(Ef ekki fæst leikskólakennari í starfið kemur til greina að ráða einstakling með aðra menntun sem nýtist í starfi).

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra. Deildarstjóri er hluti af stjórnunarteymi skólans, ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfs deildar og samstarfi við foreldra.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Reynsla af starfi í leikskóla
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Áhugi á leikskólastarfi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta er æskileg
  • Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum er skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsfólks og afsláttur af leikskólagjöldum
  • Stytting vinnuvikunnar - 36 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
  • Frítt fæði á vinnutíma, grænmetis- og veganfæði í boði
  • Samgöngustyrkur
  • Menningarkort sem veitir aðgang að söfnum borgarinnar og ókeypis bókasafnskort
  • Heilsuræktarstyrkur og frítt í sundlaugar Reykjavíkur
Advertisement published29. October 2025
Application deadline12. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Efstaland 28, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal record
Professions
Job Tags