Vörður tryggingar
Vörður tryggingar
Vörður tryggingar

Gagnasérfræðingur (e. Data scientist)

Gagnavísindi hafa tekið gríðarlegum framförum á undanförnum árum og hlutverk þeirra verður sífellt mikilvægara í að móta framtíð fyrirtækja. Að því sögðu leitum við að metnaðarfullum og lausnamiðuðum gagnasérfræðingi (e. Data scientist) til að styrkja teymið okkar. Þetta er nýtt og spennandi hlutverk þar sem viðkomandi fær tækifæri til að hafa áhrif á hvernig Vörður nýtir gögn og greiningar til að styðja við stefnu, rekstur og nýsköpun.

Hjá Verði starfar kraftmikill hópur með breiðan bakgrunn og þekkingu sem hefur það meginmarkmið að mæta þörfum viðskiptavina og þjónusta þá á framúrskarandi hátt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna með hagaðilum þvert á fyrirtækið til að skilja þarfir og tryggja aðgengi að gögnum sem nýtast í ákvarðanatöku
  • Þróa og innleiða gagnalíkön og greiningar sem styðja við stefnu og rekstur félagsins
  • Greina stór gagnasöfn og umbreyta gögnum í hagnýta innsýn fyrir stjórnendur og teymi 
  • Taka þátt í vöruþróun og nýsköpun með gagnadrifnum nálgunum
  • Skýrslugerð og miðlun niðurstaðna á skýran og áhrifaríkan hátt
  • Fylgjast með þróun í gervigreind, vélrænu námi og öðrum tækniþróunum sem tengjast gagnavinnslu
  • Stuðningur og náin samvinna með hugbúnaðarþróunarteymi Varðar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Greiningarhæfni og hæfni til að vinna úr flóknum gögnum
  • Færni í að miðla niðurstöðum á skiljanlegan hátt til ólíkra markhópa
  • Þekking á gagnagreiningu, forritun og líkanagerð (t.d. Python, R, SQL eða svipað)
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
  • Góð samskiptahæfni og geta til að vinna í þverfaglegum teymum
  • Háskólamenntun í verkfræði, stærðfræði, tölvunarfræði, hagfræði, tölfræði eða öðru sem nýtist í starfi
Fríðindi í starfi

Við bjóðum upp á frábæra vinnuaðstöðu í höfuðstöðvum okkar í Borgartúni. Þar má finna mötuneyti í heimsklassa, líkamsræktarsal í húsinu, öflugt starfsmannafélag og skemmtilegan starfsanda.

Advertisement published25. September 2025
Application deadline6. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Work environment
Professions
Job Tags