Verne
Verne

Bókari


Verne óskar eftir að ráða bókara til að sjá um fjárhagsbókhald, um er að ræða tímabundna stöðu í eitt ár. Starfsstöð er í Keflavík með möguleika á fjarvinnu 1-2 daga í viku. Um er að ræða tímabundna stöðu til 1 árs.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Daglegt fjárhagsbókhald, tryggja að það sé í samræmi við reikningsskila staðla, skattareglur og stefnu samstæðu
  • Yfirsýn fjárhagsferla og bókhalds
  • Undirbúa dagbókarfærslur, mánaðarlegar afstemmingar og lokafærslur
  • Þátttaka i mánaðaruppgjörum, ársuppgjörum og endurskoðun
  • Sjá um bókhald milli tengdra félaga og afstemmingar
  • Virðisaukaskattsafstemmingar og skýrslugerð á Íslandi og í Bretlandi
  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi bókara, helst í alþjóðlegu umhverfi
  • Góð færni í ensku
  • Góð kunnátta í bókhaldskerfum (t.d. Business Central, D365) og MS Excel
  • Nákvæm vinnubrögð og gott auga fyrir smáatriðum
  • Skipulagshæfni og geta til að sinna mörgum verkefnum samtímis
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni

Það sem við bjóðum uppá:

  • Samkeppnishæf laun
  • Möguleiki á fjarvinnu (1–2 dagar á viku)
  • Frír hádegisverður á staðnum

Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) og Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.

Advertisement published10. February 2026
Application deadline16. February 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Valhallarbraut 868, 235 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags