Bjarmahlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis
Bjarmahlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis
Bjarmahlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis

Bjarmahlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis - teymisstjóri

Bjarmahlíð leitar að teymisstjóra

Bjarmahlíð er þolendamiðstöð sem starfar samkvæmt hugmyndafræði Family Justice Centers, þar sem lögð er áhersla á að veita þolendum ofbeldis þverfaglegan stuðning á einum stað. Jafnframt vinnur miðstöðin markvisst að forvörnum og fyrirbyggjandi aðgerðum gegn ofbeldi.

Leitað er að öflugum, metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf teymisstjóra. Teymisstjóri gegnir lykilhlutverki í þjónustu við þolendur ofbeldis, leiðir teymi fagfólks, tryggir gæði þjónustunnar og kemur fram sem málsvari skjólstæðinga. Um er að ræða krefjandi en afar gefandi starf fyrir einstakling með brennandi áhuga á mannréttindum og velferð þolenda ofbeldis.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg forysta og stefnumótun: Leiða teymi fagfólks, tryggja gæði þjónustu, taka þátt í stefnumótun og tryggja framgang stefnu Bjarmahlíðar.
  • Daglegur rekstur og þjónusta: Skipulag og ábyrgð á daglegum rekstri, vörslu og meðferð fjármuna, móttöku og þjónustu við skjólstæðinga.
  • Skjólstæðingaviðtöl og úrræði: Taka viðtöl við skjólstæðinga, meta þarfir þeirra og finna viðeigandi úrræði í samráði við þá.
  • Starfsmannahald: Skipulag vinnutíma starfsmanna, utanumhald um vinnuskil og orlofsskipulag.
  • Fjármál og fjáröflun: Fjáröflun fyrir samtökin, þ.m.t. gerð styrkumsókna, og gerð draga að ársskýrslu og fjárhagsáætlun í samstarfi við framkvæmdaráð.
  • Samstarf og tengslanet: Uppbygging og viðhald á virku samstarfi við lykilsamstarfsaðila, svo sem lögreglu, barnavernd og félagsþjónustu.
  • Fræðsla og kynningarstarf: Skipulag og framkvæmd kynninga á starfsemi miðstöðvarinnar fyrir fagfólk og almenning.
  • Kynningar- og upplýsingamál: Koma fram sem talsmaður Bjarmahlíðar í fjölmiðlum og á opinberum vettvangi í samráði við framkvæmdaráð, ásamt ábyrgð á vefsíðu og samfélagsmiðlum.
  • Stjórnsýsla: Sitja fundi framkvæmdaráðs og rita fundargerðir.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun: Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Starfsreynsla: Reynsla af vinnu með þolendum ofbeldis.
  • Stjórnunarreynsla: Stjórnunarreynsla og reynsla af teymisvinnu er æskileg.
  • Fagþekking:
    • Þekking á áfallamiðaðri nálgun og helstu úrræðum fyrir þolendur ofbeldis.
    • Þekking á réttarvörslukerfinu, félagsþjónustu, barnavernd og stjórnsýslu er mikill kostur.
  • Tungumálakunnátta:
    • Mjög góð íslenskukunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum skýrt í ræðu og riti.
    • Góð enskukunnátta í ræðu og riti. Önnur tungumálakunnátta er kostur.
  • Persónulegir eiginleikar:
    • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að vinna með fjölbreyttum hópi fólks.
    • Rík leiðtoga- og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
    • Hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður og sýna seiglu í starfi.
    • Hæfni til að koma fram sem talsmaður samtakanna.
Advertisement published26. August 2026
Application deadline7. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Aðalstræti 14, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags