UPS Express ehf.
UPS á Íslandi
Express ehf. er umboðsaðili United Parcel Service á Íslandi. UPS er stærsta og öflugasta hraðsendingafyrirtæki heims með þjónustunet til rúmlega 220 landa um allan heim.
Í samvinnu við UPS býður Express ehf. hraðsendingaþjónustu inn og út úr landinu eins og best gerist á Íslandi. Undanfarin ár hefur UPS verið í mikilli sókn í Evrópu og er nú orðið leiðandi fyrirtæki á þeim markaði. Daglega eru afhentir tæplega 16 milljónir pakka um allan heim.
Í gegnum öflugt samskiptanet UPS er auðvelt að sjá hvaða sendingar eru á leið til landsins eða hvar þær eru staðsettar á leið til þín og auðvelt er að rekja sendinguna frá upprunalandi til ákvörðunarstaðar
UPS er elsta hraðsendingafyrirtæki í heiminum, stofnað í Bandaríkjunum árið 1907 og státar af meiri reynslu en nokkurt annað hraðsendingafyrirtæki. Í upphafi starfaði það aðeins innan Bandaríkjanna en færði fljótlega út þjónustusviðið og sinnir nú öllum hlutum heimsins. UPS er í dag áttunda stærsta flugfélag í heimi með 282 flugvélar á sínum snærum.
Hjá UPS starfa rúmlega 427.700 starfsmenn um heim allan, sem leggjast á eitt um að veita þér hraða og góða þjónustu. Fyrirtækinu hefur hlotnast fjöldinn allur af viðurkenningum fyrir þá góðu þjónustu sem það veitir og hefur í 15 skipti í röð verið valið ,,Americas best transportation company'' samkvæmt tímaritinu FORTUNE.
Bílstjóri UPS
ATH Staðsetning: Keflavíkurflugvöllur
- Meðal verkefna bílstjóra er undirbúningur á sendingum sem koma til landsins ásamt útkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Innheimta greiðslna og samskipti við viðskiptavini.
Almennar Hæfniskröfur:
- Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir og þjónustulundaðir.
- Geta til að koma máli sínu á framfæri í töluðu máli.
- Skipulagshæfni, stundvísi og frumkvæði.
- Hæfni og vilji til að gera betur í dag en í gær
- Geta til að vinna vel í hóp og undir pressu
- Sveigjanleiki
Aldurstakmark er 18 ár. Vinsamlega sendið umsókn í gegnum heimasíðu www.express.is
Advertisement published28. January 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
Icelandic
IntermediateRequired
English
IntermediateRequired
Location
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
Public relationsHuman relationsPlanningDeliveryCargo transportation
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Meiraprófsbílstjórar
EAK ehf.
Sumarstörf í vöruhúsi Samskipa
Samskip
Bílstjóri á höfuðborgarsvæðinu
Pósturinn
Vagnstjóri - hlutastarf á morgnana
Icelandia
Bílstjóri / Driver
Bus4u Iceland
Spennandi sumarstörf um allt land
Eimskip
Flutningmiðlari
DB SCHENKER á Íslandi
Bílstjóri óskast með C-réttindi
BAKO VERSLUNARTÆKNI ehf
Lagerstarf - Varahlutir - Bifreiðar
Vélrás
Meiraprófsbílstjóri - Húsavík
Eimskip
MS REYKJAVÍK - SUMARSTARF DREIFING
Mjólkursamsalan
Meiraprófsbílstjóri - sumarafleysingar
Bifreiðastöð ÞÞÞ