

Bílstjóri – kvöldvaktir (18-23) (hlutastarf) | BagBee 🚐
BagBee leitar að bílstjórum á kvöldvaktir sem vilja vinna sjálfstætt við að sækja farangur heim til viðskiptavina, innrita töskur fyrir flug og keyra farangurinn til Keflavíkurflugvallar.
Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni og samskipti við ferðamenn frá öllum heimshornum.
Bílstjórar BagBee vinna sjálfstætt og bera ábyrgð á að farangur komist örugglega alla leið til flugvallar.
Algengasti vinnutími er: 18:00 – 23:00
Opið er alla daga vikunnar, bæði virka daga og um helgar. Hver starfsmaður tekur nokkrar vaktir á viku eftir samkomulagi.
Starfið hentar vel með námi eða annarri vinnu.
-
Akstur með farangur á höfuðborgarsvæðinu
-
Innritun á flugfarangri fyrir viðskiptavini
-
Flutningur og afhending farangurs til Keflavíkurflugvallar
-
Samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila
Öll vinna fer fram í app í síma.
-
Bílpróf og hafa áhuga á að keyra
-
Hreint sakavottorð
-
Góð íslensku- og enskukunnátta
-
Góð tölvukunnátta (símaforrit)
-
Sjálfstæði og góð samskiptahæfni
-
Áreiðanleiki og stundvísi
Icelandic
English










