Olíudreifing Akureyri
Olíudreifing Akureyri
Olíudreifing Akureyri

Bílstjórar í sumarstörf á Norðurlandi

Olíudreifing leitar að öflugum og metnaðarfullum bílstjórum með meirapróf í sumarafleysingar hjá fyrirtækinu á starfsstöð okkar á Krossanesi, Akureyri. Tímabilið sem um ræðir er frá apríl/maí og fram í ágúst/september 2026.

Um er að ræða fjölbreytt störf við olíudreifingu.

Olíudreifing greiðir ADR námskeið og laun á námskeiðstíma fyrir þá bílstjóra sem ekki hafa ADR réttindi.

Helstu verkefni:

  • Dreifing á eldsneyti beint á vinnuvélar, tanka og skip
  • Unnið er samkvæmt ISO vottuðum verkferlum
  • Umhirða bifreiða

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Meirapróf
  • Hreint sakavottorð
  • Snyrtimennska og stundvísi
  • Rík öryggisvitund, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Íslensku- og/eða enskukunnátta

Við bjóðum þér:

  • Spennandi verkefni
  • Niðurgreiddan hádegismat
  • Vinnufatnað

Við hlökkum til að fá umsóknina þína

Tekið er á móti umsóknum ásamt afriti af meiraprófsskírteini til og með 30. apríl 2026. Nánari upplýsingar veitir Guðjón Páll Jóhannsson, svæðisstjóri Norðurlands, ([email protected]).

Við hvetjum öll kyn til að sækja um.

Um Olíudreifingu:

Olíudreifing er þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði orkumála. Hlutverk Olíudreifingar er að dreifa og halda utan um birgðir á fljótandi orkugjöfum. Félagið er nú þegar þátttakandi í orkuskiptum og er að undirbúa meðhöndlun rafeldsneytis.

Fyrirtækið rekur bifreiða-, járnsmíða-, dælu- og rafmagnsverkstæði. Einnig er rekið þjónustuverkstæði sem sinnir viðhaldi á raf- og vélbúnaði. Starfsfólk félagsins er um 130 talsins og starfar á starfsstöðvum víðsvegar um landið. Unnið er samkvæmt gæðavottuðum vinnuferlum.

Nánari upplýsingar um Olíudreifingu ehf. má finna á www.odr.is.

Advertisement published12. March 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Krossanes 148624, 603 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags