Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

Bílstjóri

Hjúkrunar-og dvalarheimilið Höfði auglýsir laust til umsóknar 100% starf bílstjóra.

Um er að ræða akstur fyrir ferðaþjónustu eldra fólks og fatlaðs fólks, akstur í og úr dagdvöl sem og annan tilfallandi akstur fyrir heimilið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Akstur þjónustuþega til og frá dagdvöl, heimili, þjónustuúrræðum eða öðrum stöðum samkvæmt skipulagi. 
  • Aðstoð við þjónustuþega við að komast örugglega inn og út úr bifreið.
  • Aðstoð við notkun hjálpartækja, svo sem göngugrinda, hjólastóla og annarra stuðningstækja eftir þörfum.
  • Tryggja öryggi farþega í akstri, meðal annars með réttri notkun öryggisbelta, hjólastólafestinga og annars öryggisbúnaðar.
  • Sýna þjónustuþegum virðingu, þolinmæði og hlýlegt viðmót.
  • Ábyrgð á daglegri skipulagningu aksturs og akstursáætlana, þar á meðal röðun ferða og tímasetninga. 
  • Vera í góðu samstarfi við starfsfólk dagdvalar, aðstandendur og aðra sem koma að þjónustu við einstaklinginn.
  • Halda bifreið snyrtilegri og ganga frá henni að loknum akstri.
  • Fylgjast með ástandi bifreiðar og láta vita ef þörf er á viðhaldi, viðgerð eða þrifum.
  • Aðstoðar umsjónarmann fasteigna við tilfallandi verkefni þegar tími gefst. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meirapróf D1 er skilyrði.
  • Gilt ökuskírteini og góð aksturshæfni.
  • Reynsla af akstri í ferðaþjónustu, akstri með eldra fólk eða fatlað fólk er kostur.
  • Rík þjónustulund, hlýlegt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Þolinmæði, ábyrgðarkennd og færni til að bregðast við ólíkum aðstæðum.
  • Stundvísi, áreiðanleiki og skipulögð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Þekking á öryggi farþega, notkun öryggisbúnaðar og meðhöndlun hjálpartækja er kostur.
  • Góð tölvukunnátta, færni til að setja upp og vinna með akstursskipulag. 
  • Hreint sakavottorð.
Advertisement published5. May 2026
Application deadline26. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Sólmundarhöfði 5, 300 Akranes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Work environment
Professions
Job Tags