
Grafa og Grjót ehf
Grafa og Grjót ehf. er sérhæft fyrirtæki á sviði jarðvinnu.
Fyrirtækið býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á sviði jarðvinnu, efnisvinnslu, flutningi og gatnagerð.

Við leitum að hörðum nöglum
Við hjá Gröfu og Grjót þurfum fleiri í lið með okkur - fólk sem kann að láta hlutina gerast og er ekki hrætt við smá mold.
Okkur vantar:
Vélamenn á beltagröfu
- Kanntu að dansa með joystick og moka eins og listamaður
- Reynsla skiptir máli - við erum ekki að moka í sandkassanum á leikskólanum
Bílstjóra á vörubíla
- Ertu með C/CE réttindi og kannt að bakka uppá millimetra
- Þekkir muninn á grús og mulning
- Kaffi og kókómjólk keyra þig áfram á milli drullupolla
Verkamenn í gatnagerð
- Kanntu að vinna með rör, sand og skóflu - án þess að missa húmorinn
- Harðduglegur, hress og mætir tímanlega (að minnsta kosti um leið og kaffið er tilbúið)
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að fólki sem:
- Er með tilskilin réttindindi
Vinnuvélaréttindi
Meirapróf (C/CE) - Talar íslensku eða ensku (það nægir að við skiljum hvort annað, móðurmálið er moldin)
- Er vinnusamt með öryggið og húmorinn á réttum stað
Fríðindi í starfi
Við lofum
- Góðu kaupi (við vitum að þú átt skilið meira en lófaklapp)
- Nútímalegum tækjum og traustu teymi
- Verkefnum sem láta daginn líða hratt og kvöldin verða stutt
Advertisement published7. May 2026
Application deadline21. May 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Hringhella 7
Type of work
Skills
ProfessionalismPositivityAmbitionPunctualCargo transportation
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Vélamaður
Fagurverk

Sumarstarf - Vélaleiga og verkstæði
Rúko hf

Vélamaður á gröfu
Garðaþjónusta Reykjavíkur

Vörubílstjóri með kranaréttindi
Garðaþjónusta Reykjavíkur

Concrete worker
Starkaðshús ehf.

Byggingarstarfsmaður í framleiðslu á forsteyptum einingum / Construction worker
Einingaverksmiðjan

Jarðvinna / Groundwork
Membra

Bilstjóri hjá Hygge Kaffi og Bakarí
Hygge coffee and bakery

Selfoss: Starfsfólk í sorphirðu / waste collector
Íslenska gámafélagið ehf.

Sumarstarf vélvirkja í tæknideild
Myllan-Ora

Meiraprófsbílstjóri óskast
Hreinsun og flutningur

Starfsmaður í malbikun og vörubílaakstur
Malbikstöðin