

Bifvélavirki / Auto Mechanic
Bílaleigan ÍSAK óskar eftir starfsmanni til að sjá um viðhald bifreiða og búnaðar sem fyrirtækið á og leigir út til viðskiptavina.
Skilyrði að viðkomandi hafi þekkingu, áhuga og reynslu af viðhaldi bíla, góða skipulagshæfni og ríka þjónustulund. Menntun í bifvélavirkjun, vélvirkjun eða tæknifræði kostur en ekki skilyrði.
Hlutverk bifvélavirkja er að tryggja besta mögulega ástand og endingu bifreiða og búnaðar sem fyrirtækið á.
Starfið hentar einstaklingi sem getur tekist á við fjölbreytt verkefni og gengið í öll önnur tilfallandi störf í samvinnu við aðra starfsmenn s.s. bílaþrif, þjónustu við viðskiptavini, flutning og neyðarþjónustu.
Bifvélavirki sér um skipulag á verkstæði, varahlutalager og viðhaldsskráningu.
Starfsstöð er á verkstæði og skrifstofu fyrirtækisins í Mosfellsbæ.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Bílaleigan ÍSAK leigir út sérútbúna bíla til aksturs með ferðamenn og í ýmis önnur verkefni.
Félagið skipuleggur einnig ferðir fyrir hópa og einstaklinga um hálendi Íslands.
- Bílaviðgerðir og viðhald búnaðar
- Skipulag og skráning á viðhaldi
- Skipulag og umsjón með verkstæði og varahlutalager
- Samskipti við viðskiptavini og afhending bifreiða
- Flutningur bíla og búnaðar
- Önnur tilfallandi störf s.s. akstur, þrif ofl.
- Þekking, áhugi og reynsla af bílaviðgerðum
- Gott vald á íslensku og ensku í skrifuðu og töluðuð máli
- Skipulagshæfileikar
- Góð almenn tölvukunnátta
- Meirapróf kostur en ekki skilyrði
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð













