
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja er framsækið þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu á nýjum og notuðum bifreiðum frá Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart ásamt þjónustu og viðhaldi fyrir viðskiptavini Öskju, bæði til einstaklinga og fyrirtækja.
Við vitum að eitt mesta virði okkar felst í góðum mannauð.
Hjá Öskju starfar samheldin og fjölbreyttur hópur sem býr yfir brennandi áhuga í sínu fagi, framúrskarandi þjónustulund og metnaði til ná árangri. Askja býður upp á fyrirmyndaraðstöðu fyrir starfsfólk, eitt fullkomnasta bifreiðaverkstæði landsins, glæsilega sýningarsali og varahlutaþjónustu.
Lögð er sérstök áhersla á að skapa menningu sem einkennist af gleði, samvinnu og sveigjanleika. Markmið fyrirtækisins er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina með því að veita starfsfólki stuðning og skapa því umhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku og heiðarleika.
Askja er staðsett á Krókhálsi í þremur húsnæðum. Askja notaðir bílar eru á Krókhálsi 7 þar sem við bjóðum upp á úrval notaðra bíla frá öllum bílaframleiðendum. Sýningarsalur Mercedes-Benz og smart er á Krókhálsi 11 ásamt höfuðstöðvum Öskju og skrifstofu og svo sýningarsalur Kia og Honda á Krókhálsi 13.

Framrúðuskipti
Bílaumboðið Askja óskar eftir að ráða reyndan starfsmann til að starfa við og hafa umsjón með framrúðuskiptum. Boðið er upp á úrvals vinnuaðstöðu til þjónustu og viðgerða í húsnæði Öskju við Krókháls 13 í Reykjavík.
Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Markmið okkar er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ísetningar og viðgerðir á framrúðum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í bifvélavirkjun/bifreiðasmíði er kostur
- Reynslu af bílaviðgerðum
- Samstarfshæfni og ríka þjónustulund
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og mikla skipulagshæfni
- Góða enskukunnátta
Af hverju Askja?
- Fjölskylduvænn vinnustaður
- Reglulegir viðburðir og frábær starfsandi
- Allir hafa rödd sem hlustað er á
- Hugað er að velferð og vellíðan starfsfólks
- Samgöngu- og líkamsræktarstyrkur
- Líkamsræktaraðstaða
Advertisement published10. June 2025
Application deadline25. June 2025
Language skills

Required
Location
Krókháls 13, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
ProactiveHuman relationsIndependenceCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (4)
Similar jobs (12)

Bifvélavirki
Fagurverk

Vélvirki á verkstæði
Rúko hf

Bifvélavirki óskast / Mechanic wanted.
Icerental4x4

Bifvélavirki / Car Mechanic
Bílvogur bifreiðaverkstæði

Sumarstarfsfólk óskast á Grundartanga
HRT þjónusta ehf.

Aðstoðarmaður á skrifstofu og bifreiðaverkstæði/Asystent w biurze i warsztacie samochodowym
Bílaverkstæðið Fram ehf

Vélvirki / Bifvélavirki
Ístak hf

Sölumaður vara- og aukahlutaverslun
ÍSBAND verkstæði og varahlutir

Verkstjóri verkstæðis í Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki/einstaklingur með mikla reynslu af viðgerðum
Colas Ísland ehf.

Bifvélavirki, skoðunarmaður, Selfoss
Aðalskoðun hf.

Bílamálari
Teitur