
Brons
Brons er afþreyingarstaður í Reykjanesbæ. Pílusvæði, sportbar, karaoke, setustofa og fleiri ölþróttir - uppskrift sem getur ekki klikkað!
Brons er kærkomin viðbót í framboð afþreyingar í Reykjanesbæ og er ætlunin að skapa skemmtilegt og lifandi andrúmsloft fyrir einstaklinga jafnt sem hópa.

Barþjónar á Brons
Brons leitar eftir hressu og metnaðarfullu starfsfólki í skemmtilegt þjónustustarf á spennandi og skemmtilegum afþreyingarstað í Reykjanesbæ.
Barþjónar eru gestgjafar staðarins og þarf umsækjandi að vera opin og félagslynd manneskja sem hefur gaman af því að taka á móti hópum og veita framúrskarandi þjónustu.
Við erum að leita að flottum einstaklingum í aukavinnu sem vilja vera partur af teyminu hjá okkur og taka virkan þátt í að byggja upp frábæra stemningu í skemmtilegu og lifandi vinnuumhverfi.
Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma, kvöld og helgarvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Taka vel á móti gestum staðarins
- Almenn afgreiðsla og þrif á barsvæði, pílu- og veitingasal
- Almenn þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavinarsins
- Önnur verkefni í samráði við vaktstjóra og rekstrarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hafa náð 20 ára aldri
- Reynsla af veitinga- og þjónustustarfi kostur
- Metnaður fyrir því að veita framúrskarandi þjónustu
- Færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund er kostur
- Stundvísi, jákvæðni og metnaður til að gera vel í starfi
Advertisement published27. April 2026
Application deadline11. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Sólvallagata 2, 230 Reykjanesbær
Type of work
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Verslunarstjóri - Fullt starf
Joe & the juice

Sölufulltrúi í Icewear Hveragerði
ICEWEAR

Gestamóttaka / Reception - Stracta Hótel
Stracta Hótel

Barþjónn / Bartender
Lóla Restaurant

Þjónustufulltrúi í móttöku / Service Representative
Alvotech hf

Sumarstarf í Vík
Arion banki

Apótekarinn Vík - Sala og þjónusta
Apótekarinn

Sölu- og þjónusturáðgjafi - fullt starf - Flügger Akureyri 🎨
Flügger Litir

Apótekarinn Vík - Umsjón útibús
Apótekarinn

Afgreiðslu- og lagerstarf og útkeyrsla. Sumar eða framtíðarstarf.
Kraftar og Afl. Motul á Íslandi.

Gæludýr.is AKUREYRI
Waterfront ehf

Lyfja Patreksfirði - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja