Hjallastefnan
Hjallastefnan
Hjallastefnan

Barnaskólinn í Hafnarfirði - Stuðningsfulltrúi

Laus er 100% staða stuðningsfulltrúa á yngsta stigi grunnskóla (1.-4. bekkur) við Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði frá 1. janúar eða fyrr.

Í Barnaskólanum starfar einstaklega flottur og jákvæður hópur fólks og því leitum við að jákvæðum og lífsglöðum stuðningsfulltrúa sem er tilbúinn að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika. Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi. Námsumhverfið er mjög lifandi þar sem sköpun er í fyrirrúmi því ekki er um bókastýrða kennslu að ræða.

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði er í einstaklega fallegu og skemmtilegu umhverfi með Víðistaðatúnið í bakgarðinum. Skólann sækja börn á aldrinum 5-9 ára. Jafnréttisuppeldi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir hugmyndafræðinnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska komandi kynslóða. Við hvetjum öll kyn til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfa eftir stefnu skólans, samkvæmt aðalnámskrá, skólanámskrá og kynjanámskrá Hjallastefnunnar
  • Stuðla að velferð barna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og þekking á starfi með börnum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Jákvæðni
Fríðindi í starfi
  • Frítt fæði á vinnutíma
Advertisement published25. November 2024
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Flexibility
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags