Hjallastefnan
Hjallastefnan
Hjallastefnan

Barnaskólinn í Hafnarfirði - leikskólakennari/leiðbeinandi með 5 ára börn

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði auglýsir lausa stöðu leikskólakennara/leiðbeinanda með 5 ára leikskólabörn.

Um er að ræða 100% starfshlutfall út skólaárið með möguleika á fastráðningu.

Í Barnaskólanum starfar einstaklega flottur og jákvæður hópur fólks og því leitum við að jákvæðum og lífsglöðum kennurum sem er tilbúnir að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika. Viðkomandi þurfa að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi. Námsumhverfið er mjög lifandi þar sem sköpun er í fyrirrúmi.

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði er samrekinn leik- og grunnskóli í einstaklega fallegu og skemmtilegu umhverfi með Víðistaðatúnið í bakgarðinum. Skólann sækja börn á aldrinum 5-9 ára. Jafnréttisuppeldi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir hugmyndafræðinnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska komandi kynslóða. Við hvetjum öll kyn til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfa eftir stefnu skólans og kenna samkvæmt aðalnámskrá leikskóla, skólanámskrá og kynjanámskrá Hjallastefnunnar
  • Taka þátt í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki
  • Stuðla að velferð barna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennsluréttindi æskileg
  • Reynsla, menntun og þekking á starfi með börnum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Mjög góð íslenskukunnátta
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Jákvæðni og gleðiríkt viðmót
Fríðindi í starfi
  • Starfsfólk er í fríu fæði allan vinnudaginn og komið er til móts við séróskir um mataræði
Advertisement published20. October 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
ÍslenskaÍslenska
Required
Framúrskarandi
Location
Hjallabraut 55, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Punctual
Professions
Job Tags