Garðabær
Garðabær
Garðabær

Bæjarból - leikskólakennari í 100% starf

Leikskólinn Bæjarból auglýsir eftir leikskólakennara í 100% stöðu. Leikskólinn er fjögurra deilda og þar eru börn á aldrinum 1- 5 ára

Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur – Hreyfing – Lífsleikni

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
  • Skipuleggur og framkvæmir útikennslu allra barna í leikskólanum
Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sveigjanleiki

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu er leitað eftir einstaklingi með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi

Hlunnindi fyrir starfsmenn Bæjarbóls:

  • Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er 2 klukkustundum á viku safnað upp í frídaga.
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar.
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánudaga-fimmtudaga og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar

Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:

  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.

Hlunnindi fyrir starfsmenn leikskóla:

  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
  • 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
  • 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
  • Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
  • Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Advertisement published28. September 2026
Application deadline15. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Punctual
Professions
Job Tags