Apótekarinn
Apótekarinn
Apótekarinn

Apótekarinn - Flakkari

Apótekarinn leitar að þjónustulunduðum starfsmanni í 100% starf flakkara.

Um er að ræða starf með föstum vöktum kl 9/10-18 alla virka daga, þar sem viðkomandi hefur eina ákveðna starfsstöð en sinnir afleysingum í öðrum apótekum félagsins í forföllum.

Um er að ræða starf þar sem viðkomandi kynnist mörgum starfsmönnum, viðskiptavinum og starfsstöðvum.

Viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða - greiddur er bifreiðastyrkur.

Um framtíðarstarf er að ræða.

Starfssvið:

- Ráðgjöf til viðskiptavina

- Almenn þjónusta og sala

Hæfniskröfur:

- Lyfjatæknimenntun er mikill kostur.

- Reynsla af starfi í apóteki er kostur

- þekking á snyrtivörum er kostur

- Framúrskarandi íslenskukunnátta skilyrði

- Mikil þjónustulund og jákvæðni

- Lágmarksaldur er 20 ára

Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf strax.


Apótekarinn er framsækið þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið.

Fyrirtækið leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu á sviði heilsu, heilbrigði og lífsgæða.

Advertisement published13. January 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Síðumúli 20, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags