

Akademísk staða á sviði tölfræði, gagnaúrvinnslu og aðferðafræði
Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík (HR) auglýsir eftir akademískum starfsmanni í fullt starf á sviði tölfræði, gagnaúrvinnslu og aðferðafræði. Ráðið verður í stöðu lektors, dósents eða prófessors og verður starfsheiti ákvarðað út frá formlegu hæfnismati. Við leitum að einstaklingi með þekkingu og reynslu á sviði tölfræðilegrar greiningar og rannsóknaraðferða, sem jafnframt hefur brennandi áhuga á kennslu, leiðsögn og samstarfi í þverfaglegu fræðasamfélagi.
STARFSSVIÐ:
- Rannsóknir á sviði sálfræði eða skyldra greina með áherslu á gagnagreiningu og aðferðafræðilega nálgun.
- Kennsla í tölfræði, aðferðafræði og tengdum greinum innan sálfræðideildar á grunn- og framhaldsstigi.
- Leiðsögn nemenda á BSc-, MSc- og PhD-stigi.
- Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk og nemendur í greiningu og úrvinnslu gagna í tengslum við rannsóknarverkefni og lokaverkefni.
- Þátttaka í stjórnsýslu deildarinnar.
HÆFNISKRÖFUR:
- Doktorspróf í sálfræði eða skyldri grein, með sérhæfingu í tölfræði, aðferðafræði eða gagnagreiningu.
- Færni og reynsla af rannsóknarstörfum staðfest af birtum ritverkum á viðurkenndum alþjóðlegum vettvangi.
- Reynsla af kennslu og metnaður í þróun kennsluaðferða.
- Góð enskukunnátta er skilyrði.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Sálfræðideild HR er öflugt og ört vaxandi fræðasamfélag sem leggur áherslu á hagnýtar rannsóknir, gæði í kennslu og samvinnu við innlenda og erlenda aðila. Deildin starfar í alþjóðlegu umhverfi og tekur virkan þátt í evrópskum samstarfsverkefnum og rannsóknarnetum. Deildin býður upp á nám á á öllum námsstigum, BSc, MSc og PhD.
Háskólinn í Reykjavík tekur þátt í flutningskostnaði fyrir nýja kennara sem flytja frá útlöndum. Nánari upplýsingar um starfið veita Dr. Kamilla Rún Jóhannsdóttir ([email protected]) forseti sálfræðideildar. og mannauðsdeild ([email protected]). Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík eigi síðar en 31. ágúst 2025.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsóknum:
- Umsóknarbréf þar sem fram kemur hvort umsækjandi sækir um starf lektors, dósents eða prófessors.
- Starfsferilskrá ásamt ritaskrá.
- Afrit af viðeigandi prófskírteinum.
- Yfirlit um fyrirhugaðar rannsóknir (e. research statement).
- Afrit af þremur til fimm birtum ritverkum.
- Yfirlit um fyrirhugaða kennslu og nálgun umsækjanda í kennslu (e. teaching statement).
- Gögn til vitnis um árangur í kennslu.
- Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill koma á framfæri og geta stutt umsóknina.

