Garri
Garri
Garri

Aðstoðarvöruhússtjóri Garra

Ert þú öflugur leiðtogi með áhuga á skilvirkum rekstri, tækni og stöðugum umbótum?

Við hjá Garra leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum aðstoðarvöruhússtjóra til að taka þátt í daglegum rekstri og áframhaldandi þróun vöruhússins.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf þar sem reynir á leiðtogahæfni, skipulag og tæknilega þekkingu. Við leitum að einstaklingi sem hefur gott lag á að leiða fólk, sér tækifæri til umbóta og hefur metnað til að þróa skilvirka verkferla og nýta tæknilausnir til að ná enn betri árangri.

Aðstoðarvöruhússtjóri vinnur náið með vöruhússtjóra og gegnir lykilhlutverki í daglegri verkstýringu, þróun kerfa og innleiðingu umbóta.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg verkstýring og eftirfylgni með starfsemi vöruhússins.
  • Umsjón með skilvirku vöruflæði, afköstum og gæðum.
  • Rekstrarleg umsjón með vöruhúsakerfum, m.a. AX, vöruturnum og dreifingarkerfi.
  • Greining og innleiðing umbóta á kerfum, verkferlum og sjálfvirknilausnum.
  • Leiðsögn, stuðningur og þjálfun starfsfólks.
  • Eftirfylgni með gæða- og öryggiskröfum í daglegum rekstri.
  • Náið samstarf við vöruhússtjóra og aðrar deildir fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Marktæk reynsla af vöruhúsarekstri, verkstýringu eða sambærilegri starfsemi.
  • Góð reynsla af notkun og umsýslu vöruhúsa- og viðskiptakerfa, ásamt þekkingu á Microsoft Dynamics AX og sjálfvirkum geymslulausnum.
  • Reynsla af umbótastarfi og innleiðingu nýrra lausna er skilyrði.
  • Sterk leiðtogahæfni og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Góð greiningarhæfni, frumkvæði og sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði.
  • Menntun sem nýtist í starfi og lyftararéttindi eru kostur.
Fríðindi í starfi
  • Afsláttur af vörum Garra
  • Íþrótta- og sálfræðistyrkur
  • Árleg heilsufarsmæling og ráðgjöf
  • Mötuneyti með hollum og fjölbreyttum mat
  • Frábærir samstarfsfélagar & öflugt starfsmannafélag
Advertisement published13. October 2026
Application deadline25. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Hádegismóar 1, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Dynamics AXPathCreated with Sketch.Designing proceduresPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Implementing proceduresPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.System integrationPathCreated with Sketch.AutomationPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Employee scheduling
Professions
Job Tags