Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarskólastjóri - Öldutúnsskóli

Öldutúnsskóli auglýsir eftir Aðstoðarskólastjóra, um er að ræða afleysingu frá 1. janúar til 31. júlí 2025.

Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. - 10. bekk.

Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur ríka áherslu á umhverfismál og hefur tekið á móti Grænfánanum fimm sinnum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stýrir daglegu skólastarfi í samvinnu við stjórnendateymi skólans, starfsmenn og foreldra
  • Er staðgengill skólastjóra
  • Veitir faglega forystu og mótar framtíðarsýn í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Viðbótarmenntun/framhaldsmenntun í stjórnun æskileg
  • Farsæl kennslu- og/eða stjórnunarreynsla
  • Þekking og/eða reynsla á SMT skólafærni æskileg
  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og góðir skipulagshæfileikar
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.

Nánari upplýsingar veitir Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma: 664-5898, valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 2. október nk.

Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og SÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Advertisement published19. September 2024
Application deadline2. October 2024
Language skills
IcelandicIcelandicVery good
Location
Öldutún 9, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags