Kennari á miðstigi - Víðistaðaskóli
Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða kennara á miðstig út skólaárið 2024-2025.
Víðistaðaskóli var stofnaður árið 1970, skólinn er heildstæður skóli með 1. – 10. bekk og eru nemendur um 480. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing - Vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góðan námsárangur. Unnið er að þróun teymiskennslu og notkunar spjalda í skólastarfi. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Víðistaðaskóli er heilsueflandi grunnskóli og starfar í anda grænfánans þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal allra sem í skólanum starfa.
Helstu verkefni:
- Annast kennslu á miðstigi í nánu samstarfi við umsjónarkennara stigsins
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem starfsmaður felur starfsmanni
Hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, í síma 6645890, dagnyk@vidistadaskoli.is eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, valaj@vidistadaskoli.is
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2024
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.