
Arnarsmári
Leikskólinn Arnarsmári er fimm deilda leikskóli og í honum eru um 84 börn á aldrinum eins árs til sex ára. Arnarsmári er opinn skóli, þ.e. að deildirnar eru ekki mjög stórar en stór svæði um skólann eru samnýtt af öllum deildunum. Leikskólinn stendur á Nónhæð, lóðin er stór og góð og útsýni frá skólanum er mikið og fagurt.
Frumkvæði, vinátta og gleði eru einkunnarorð skólans. Með áherslu á þau gildi er skapað öruggt umhverfi, sem eykur vellíðan og ánægju einstaklingsins og hópsins í heild. Í tengslum við einkunnarorð skólans er lögð áhersla á iðkun dyggða. Unnið er sérstaklega með hverja dyggð í u.þ.b. sex vikur í senn þar sem börn og kennarar tileinka sér þær. Þau ræða saman um dyggðirnar, syngja lög og lesa bækur sem tengjast þeim.
Í Arnarsmára er stuðlað að því að börnin verði sjálfstæðir, gagnrýnir, virkir og ábyrgir þjóðfélagsþegnar. Börnin þurfa að njóta sín sem einstaklingar í barnahópnum, öðlast sjálfstraust, jákvæða sjálfsmynd og sterka sjálfsvitund. Þau þurfa að læra að vinna með öðrum, eignast vini, sýna tillitssemi og öðlast heilbrigða samkennd.
Arnarsmári er einnig Réttindaskóli UNICEF en í því felst að byggja upp lýðræðislegt umhverfi, standa vörð um réttindi barna og rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpar börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í samfélaginu okkar.

Aðstoðarmatráður tímabundið
Við leitum eftir aðstoðarmatráði tímabundið til áramóta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- frágangur og þrif í eldhúsi
- undirbúa morgunverð
- sjá um þvott
- aðstoð við matseld og undirbúa máltíðir
- önnur tilfallandi verkefni í samráði við matráð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskukunnátta
- jákvæðni, frumkvæði , góð samskiptahæfni
- sjálfstæði og skipuleg vinnubrögð
- hreint sakavottorð
Advertisement published8. October 2025
Application deadline22. October 2025
Language skills

Required
Location
Arnarsmári 34, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PositivityHuman relationsConscientiousPunctual
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Leikskólakennari/leiðbeinandi
Leikskólinn Furuskógur

Leiðbeinandi óskast í leikskólann Nóaborg - 36 stunda vinnuvika
Leikskólinn Nóaborg

Deildarstjóri í Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Stuðningsfulltrúi í félagsmiðstöð -Askja
Kringlumýri frístundamiðstöð

Stuðningsfulltrúi óskast í leikskólann Nóaborg - 36 stunda vinnuvika
Leikskólinn Nóaborg

Krakkakot leitar að viðbót við flottan starfsmannahóp í 100% starf
Garðabær

Leikskólinn Mánahvoll auglýsir eftir leikskólakennara
Ungbarnaleikskólinn Mánahvoll

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast í Efstahjalla
Efstihjalli

Tímabundin staða í Marbakka
Marbakki

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast í Vinaminni
Leikskólinn Vinaminni

Leikskólakennari óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Leikskólakennari - leikskólaliði
Leikskólinn Ösp