

Aðstoðarmatráður í framleiðslueldhús Sunnulækjarskóla
Sunnulækjarskóli í sveitarfélaginu Árborg óskar eftir að ráða metnaðarfullan, barngóðan og jákvæðan einstakling í tímabundna100% stöðu aðstoðarmatráðar í framleiðslueldhúsi skólans. Ráðningin er frá 8. september til 31. ágúst 2026.
Í skólanum eru um 620 börn og 140 starfsmenn. Eldhúsið eldar einnig hádegismat fyrir tvo leikskóla í sveitarfélaginu sem er sendur í móttökueldhús og annast kaffiveitingar fyrir frístundastarf í skólanum. Í eldhúsinu starfa auk aðstoðarmatráðs, matráður og fjórir aðstoðarmenn í eldhúsi.
Aðstoðarmatráður starfar í framleiðslueldhúsi skólans og undirbýr og matreiðir máltíðir samkvæmt fyrirmælum matráðs mötuneytis og í samræmi við ráðleggingar Embættis landlæknis um mataræði ungra barna.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Að undirbúa, matreiða, baka, framreiða og ganga frá og þrífa að loknu starfi.
- Taka á móti hráefnum, meðhöndla þau til geymslu, vinna þau fyrir matreiðslu og matreiða eftir þörfum á viðeigandi hátt samkvæmt leiðbeiningum.
- Sjá um að skera niður ávexti fyrir nemendur og annast kaffiveitingar fyrir starfsmenn og frágang.
- Leysa matráð af sé þess óskað af yfirmanni.
- Sjá um þrif og að skráningum þeirra sé sinnt samkvæmt reglum um hollustuhætti.
- Sækja endur- og símenntun til að fylgjast með nýjungum í starfi og sitja starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi mötuneytisins.
- Menntuno og reynsla af starfi í mötuneyti eða skólaeldhúsum er æskileg.
- Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Þekking á næringarfræði.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Góð íslenskukunnátta.
- Ber ábyrgð á að starfa í samræmi við lög og reglugerðir sem við eiga og stefnu Sveitarfélagsins Árborgar.












