Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara
Hefur þú áhuga á heilsueflingu og bættum lífsgæðum eldri borgara?
Sólvangur hjúkrunarheimili leitar að aðstoðarmanni sjúkraþjálfara.
Um er að ræða 55,56% stöðu, vinnutími er frá kl. 08:00 til 12:00 alla virka daga.
Skilyrði er að viðkomandi hafi góða íslenskukunnáttu (C1/C2), sé orðin 18 ára og er með hreint sakavottorð.
· Aðstoða sjúkraþjálfara við meðferð og þjálfun íbúa
· Hafa eftirlit með íbúum á þjálfunarsvæði
· Hafa eftirlit með búnaði og húsnæði
· Umsjón með vinnusvæði, líni og öðrum rekstrarvörum
· Sinna léttum þrifum á tækjum
· Taka þátt í öðrum störfum innan sjúkraþjálfunar eftir þörfum
· Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu samstarfi
· Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
· Skipulagshæfni og sveigjanleiki
· Reynsla af umönnunarstarfi eða öðru starfi með öldruðum er kostur en ekki skilyrði