Intellecta
Intellecta
Intellecta

Aðstoðarmaður forstjóra

Stórt fyrirtæki í Reykjavík sem starfar á alþjóðamarkaði óskar eftir að ráða traustan og þjónustulipran einstakling í fjölbreytt starf aðstoðarmanns forstjóra. Starfið felur í sér náið samstarf við forstjóra og framkvæmdastjóra fjármálasviðs, auk stuðnings við daglegan rekstur skrifstofunnar, innkaup og innflutning.

Við óskum eftir einstaklingi sem er skipulagður og sjálfstæður, á gott með samskipti og er tilbúinn að ganga í þau verkefni sem þarf að sinna hverju sinni. Mikilvægt er að viðkomandi hafi jákvætt viðhorf og líti svo á að ekkert verkefni sé of stórt eða of smátt. Starfið hentar einstaklingi sem kann vel við fjölbreytileika og hraða, tekur eftir því sem þarf að gera og sinnir því af fagmennsku.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bókun og skipulagning ferðalaga, innanlands sem erlendis
  • Móttaka gesta, undirbúningur funda og fundargagna ásamt frágangi eftir fundi
  • Tollskýrslugerð og umsjón með inn- og útflutningsgögnum
  • Skráning og vinnsla upplýsinga í Axapta
  • Aðstoð við bréfaskriftir, tölvupóst og almenna skjalavinnslu
  • Aðstoð við innkaup á vörum og þjónustu erlendis frá og samskipti við birgja
  • Umsjón með ýmsum hagnýtum verkefnum á skrifstofunni og daglegu starfi forstjóra, auk samskipta s.s. við viðskiptavini og birgja
  • ​​​​​​​Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af innflutningi, tollskýrslugerð og/eða erlendum innkaupum er skilyrði
  • Mjög góð skipulags- og samskiptahæfni og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og áreiðanleiki
  • Þekking og reynsla af Axapta er skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta, sérstaklega í Microsoft 365
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Advertisement published27. October 2026
Application deadline10. November 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AxaptaPathCreated with Sketch.Microsoft 365PathCreated with Sketch.Email communication
Professions
Job Tags