
Aðstoðarkona óskast
Langveik rúmlega fertug kona, sem búsett er í 201 Kópavogi, óskar eftir íslenskri aðstoðarkonu, ca. 25 – 55 ára. Umsækjandi þarf að vera líkamlega og andlega hraust, stundvís, hlý, þolinmóð, úrræðagóð, skilningsrík og reyklaus. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu á einhverfurófinu. Vinnutími er sveigjanlegur. Starfið felur í sér ýmis verkefni og erindagjörðir t.d. akstur, versla, elda stundum, þrif, aðstoð á heimili og síðast en ekki síst að veita félagslegan stuðning. Tölvufærni væri bónus (t.d. Instagram og TikTok).
Starfshlutfall eftir samkomulagi eða ca 20 - 40% og unnið er í anda NPA og hugmyndafræði um sjálfstætt líf. Hreint sakarvottorð er skilyrði sem og bílpróf en umsækjandi þarf þó ekki að nýta eigin bíl í vinnunni.
Umsóknir þurfa að berast sem fyrst.












