Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar - Gjörgæsla í Fossvogi
Við leitum eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar á gjörgæslu í Fossvogi. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á stjórnun, búa yfir afburða samskiptahæfni og hafa hæfni til að takast á við breytingar. Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum hjúkrunar, gagnreyndum starfsháttum og öryggi sjúklinga. Aðstoðardeildarstjóri er virkur þáttakandi í stjórnendateymi deildarinnar í ýmsum verkefnum tengdum stjórnun, rekstri, þjónustu og mannauði. Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við þverfagleg teymi og fjölmargt annað fagfólk spítalans. Í boði er spennandi og áhugavert starf og mikil tækifæri til faglegrar þróunar. Starfshlutfall er 100% starf og unnið að mestu í dagvinnu. Starfið laust 1. júní 2024 eða eftir samkomulagi.
Gjörgæsla heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Á deildinni starfa rúmlega 100 starfsmenn, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum og á öðrum deildum spítalans. Deildin þjónar einstaklingum, bæði börnum og fullorðnum, sem þarfnast gjörgæslumeðferðar og hágæslumeðferðar af margvíslegum ástæðum. Þar er veitt almenn gjörgæslumeðferð ásamt mjög sérhæfðri meðferð sjúklinga með fjöláverka eftir alvarleg slys, höfuðáverka, brunasjúklinga og einstaklinga með alvarlega æðasjúkdóma. Deildin er opin allan sólarhringinn alla daga ársins. Vinnutímaskipulag deildar er vaktavinna og unnið er á þrískiptum vöktum.