
Iðan fræðslusetur

Verkstjóri í iðnaði – ábyrgð og verksvið
Hlutverk verkstjóra í iðnaði eru margvísleg og ýmiskonar ábyrgð og skyldur sem hvíla á þeim. Þetta námskeið er hagnýtt námskeið fyrir þá sem vilja styrkja sig og eflast í starfi verkstjórans.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað verkstjórum, nýjum stjórnendum og öllum þeim sem sinna daglegri stjórn og skipulagi starfsfólks á vinnustað.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að efla faglega hæfni verkstjóra í leiðtogahlutverkinu og stjórnun. Þátttakendur öðlast betri skilning á ábyrgð sinni og hvernig hægt sé að styðja við og leiða teymi.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Stjórnandahlutverkið – sjálfsþekking, gildi og ábyrgð
- Hlutverk, ábyrgð og réttindi verkstjóra og starfsmanna
- Mannauðsstjórnun og jafningjastjórnun
- Samskipti og leiðtogafærni (virk hlustun, 360° samskipti)
- Öryggis- og vinnuvernd á vinnustað
- Gæðastjórnun og umhverfismál
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkingu á eigin styrkleikum, gildum og stjórnunarstíl
- Skilning á mikilvægi ábyrgðar og skyldum verkstjóra gagnvart starfsfólki og rekstri
- Þekkingu á aðferðum til að takast á við jafningjastjórnun og byggja upp jákvæða teymismenningu
- Þekkingu og færni í virkum samskiptum og veitt uppbyggjandi endurgjöf
- Skilning á hlutverki sínu í vinnuverndar- og öryggismálum til að stuðla að sterkri öryggismenningu á vinnustað
- Skilning á hugmyndum gæðastjórnunar og umhverfisvitundar til að draga úr sóun og auka skilvirkni.
Starts
13. Oct 2026Type
On siteTimespan
1 timesShare
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Iðan fræðslusetur
Öryggis- og lokaúttekt - skil á gögnum
Iðan fræðslusetur13. Oct
Hefðbundinn stjórnbúnaður hitakerfa
Iðan fræðsluseturOn site13. Oct
Ostanámskeið með Bjarka Long
Iðan fræðsluseturOn site09. Oct
Svansvottun - endurbætur húsnæðis
Iðan fræðsluseturOn site07. Oct
Ofurkraftar í matvæla- og veitingagreinum
Iðan fræðslusetur05. Oct