Rafmennt
Rafmennt
Rafmennt

Tilboðsgerð í opinberum útboðum

Námskeiðið veitir hagnýta innsýn í opinbert útboðsferli frá auglýsingu til samningsgerðar, með áherslu á lestur og skilning útboðsgagna, hæfiskröfur og mismunandi matsforsendur. Þátttakendur læra að greina lágmarkskröfur, forðast algeng mistök í tilboðsgerð og gagnaskilum, móta markvissar fyrirspurnir og bregðast við óskýrleika í skilmálum. Námskeiðið hentar þeim sem koma að gerð tilboða í útboðum og vilja auka líkur á gildum og samkeppnishæfum tilboðum.

Þekkingarviðmið
  • Skilja og þekkja almennt útboðsferli, frá auglýsingu til samnings
  • Kunna að lesa í hæfiskröfur og hvernig þær eru uppfylltar
  • Greina útboðsgögn með tilliti til lágmarkskrafna til tilboða
  • Greina samkeppnina og lesa í tilboð annarra aðila
  • Skilja mismunandi matslíkön ef verð er ekki eina matsatriðið
  • Læra að forðast algeng mistök bæði við tilboðsgerð og gagnaskil
  • Koma auga á óskýrleika í skilmálum og hvernig á að bregðast við þeim
  • Formun fyrirspurna á fyrirspurnarfresti
Starts
21. Apr 2026
Type
On site
Timespan
1 times
Price
31,200 kr.
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories