Rafmennt
Rafmennt
Rafmennt

Læsa – Merkja – Prófa

Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna við vél- og rafbúnað þar sem hætta er á óvæntri ræsingu eða orkulosun.

Farið er yfir aðferðir til að koma í veg fyrir skaða á fólki vegna óvæntrar ræsingar eða áhleypingar með notkun persónulása.

Markmið

Eftir þetta námskeið ætti nemandi að

  • geta skipulagt, framkvæmt, prófað og fjarlægt læsingar sem ætlað er að tryggja öryggi starfsfólks
  • geta notað persónulás til að tryggja öryggi sitt


Kennari er Sigurður Rúnar Rúnarsson, vélfræðingur í virkjunum Orku náttúrunnar.

Athugið að þetta námskeið er einungis í staðkennslu

Starts
20. Apr 2026
Type
On site
Timespan
1 times
Price
19,400 kr.
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories