
Iðan fræðslusetur

SketchUp alla leið
Frá fyrstu skissu til sýndarveruleika – náðu tökum á SketchUp frá upphafi til enda
Fyrir hverja:
Námskeiðið hentar iðnaðarmönnum, tæknimönnum og hönnuðum sem vilja ná valdi á notkun SketchUp Pro í þrívíðri teikningu, verkteikningum og kynningarefni – hvort sem það er fyrir framleiðslu, hönnun eða sýndarveruleika.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist heildstæða færni í notkun SketchUp Pro og Layout – frá einföldum teikningum til líflegra kynninga í 3D og VR.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Grunnatriði í þrívíðri teikningu í SketchUp
- Málsetningu og uppsetningu verkteikninga
- Vinnubúðir með leiðbeinanda eða eigin verkefni
- Notkun Layout og kynningarefnis í 3D og VR
- Twinmotion og sýndarveruleiki
- Sjálfstæða vinnu og skapandi lausnir
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta hannað í SketchUp frá grunni
- Kunna að útbúa verkteikningar með Layout
- Geta gert kynningarefni með 3D og VR eiginleikum
- Kunna að nýta SketchUp í daglegum störfum með fagmennsku
Aðrar upplýsingar:
Þátttakendur fá aðgang að SketchUp Pro á meðan á kennslu stendur og forritið er uppsett í kennslutölvum. Ekki er nauðsynleg forþekking á notkun forritsins en grunnfærni í tölvuvinnu er æskileg.
Starts
19. Jan 2026Type
On siteShare
Send message
Share
Copy URL
Categories