

Scotch Whisky Masterclass
Fyrir hvern / For Whom:
Námskeiðið hentar bæði byrjendum sem vilja kynnast heimi skosks viskís og þeim sem hafa meiri reynslu og vilja dýpka skilning sinn á mismunandi viskísvæðum, stílum og bragðeinkennum.
This course is suitable for both beginners who want to discover the world of Scotch whisky and those with prior experience who wish to deepen their understanding of whisky regions, styles, and flavour profiles.
Markmið / Objective:
Að kynna helstu viskísvæði Skotlands og auka skilning þátttakenda á ilmi, bragði og áferð viskís. Áhersla er lögð á að kenna þátttakendum að smakka viskí á meðvitaðan og sjálfstæðan hátt og styrkja sjálfstraust þeirra í mati og upplifun á drykknum.
To introduce the main whisky regions of Scotland and enhance participants’ understanding of whisky aroma, flavor, and texture. The course focuses on developing a sensory approach to whisky tasting and strengthening participants’ confidence in evaluating and enjoying whisky.
Á námskeiðinu verður fjallað um / The Course Will Cover:
- Fimm helstu viskísvæði Skotlands og sérkenni þeirra
- Áhrif uppruna, framleiðsluaðferða og þroskunar á bragð og karakter viskís
- Grunnatriði í viskísmökkun: ilmur, bragð, áferð og eftirbragð
- Hvernig viskí breytist og opnast í glasinu með tíma og lofti
- Aðferðir til að greina og bera saman mismunandi stíla skosks viskís
- The five main whisky regions of Scotland and their distinctive characteristics
- How origin, production methods, and maturation influence whisky flavor and character
- Basic whisky tasting techniques: aroma, flavor, mouthfeel, and finish
- How whisky evolves and opens up in the glass over time
- Methods for comparing and identifying different Scotch whisky styles
Að loknu námskeiði á nemandi að / Upon Completion, Participants Will Be Able To :
- Geta greint helstu stíleinkenni skoskra viskísvæða
- Smakka viskí með meiri vitund og öryggi
- Geta lýst bragðupplifun og uppruna viskís
- Taka upplýstari ákvarðanir við val á viskíi
- Identify the main style characteristics of Scotch whisky regions
- Taste whisky with greater awareness and confidence
- Use simple and personal language to describe their tasting experience
- Make more informed choices when selecting whisky
Viskí í smökkun / Whiskies in the Tasting:
- Lowland: Glenkinchie 12 ára / Years
- Highland: GlenDronach 12 ára / Years
- Speyside: Glenfarclas 12 ára / Years
- Campbeltown: Glen Scotia 10 ára / Years
- Islay: Ardbeg Wee Beastie 5 ára / Years