Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

PitStop Pro - Öflug pdf vinnsla

Þetta námskeið er ítarleg kynning á PitStop Pro, öflugu verkfæri fyrir grafíska miðlara sem gerir þeim kleift að yfirfara (preflight), lagfæra og breyta PDF skjölum fyrir prentun.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið hentar fagfólki sem vinnur með prentskjöl, grafískum miðlurum, umbrotsfólki, prenturum og hönnuðum.

Markmið:

Að þátttakendur geti yfirfarið og lagfært pdf skjöl með nákvæmum og skilvirkum hætti.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Þátttakendur læra að greina villur í skjölum, leiðrétta sjálfkrafa algeng mistök og tryggja að skrár séu hæfar til prentunar.
  • PitStop Pro hugbúnaðinn ásamt tengingum við annan hugbúnað Enfocus og möguleika í framleiðsluferlinu.
  • Hvernig hægt er að hanna verkferla til þess að bæta gæði og koma í veg fyrir dýr mistök.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta þátttakendur yfirfarið og lagfært skjöl fyrir prentun.
  • Búið til sína eigin verkferla.
Starts
1. Sep 2025
Type
On site
Timespan
2 times
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories