
Iðan fræðslusetur

Persónusniðnar lausnir í auglýsingaprenti
Hvernig eru stafrænar lausnir, persónusniðin framleiðsla og textílprentun að umbreyta auglýsingaprenti? Haldið verður áfram umræðum um nýjustu þróun og tæknilausnir.
Fyrir hverja:
Þessi fyrirlestur hentar öllum sem starfa við eða hafa áhuga á prentiðnaði, skiltagerð, merkingum, textílprentun og umbúðagerð og vilja fylgjast með nýjustu straumum og nýta þá í sinni starfsemi.
Markmið:
Markmið fyrirlestursins er að kynna hvernig stafrænar lausnir, persónusniðin framleiðsla og textílprentun eru að umbreyta auglýsingaprenti.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Persónumerkingar og sérsniðnar lausnir í prentun
- Þróun í stafrænu prenti og breyttar kröfur markaðarins
- Nýjungar í textílprentun og notkunarsvið hennar
- Samspil hönnunar, gagna og framleiðslu
- Dæmi um skapandi og nýstárlega notkun
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Skilja þróun í persónusniðnum prentlausnum
- Þekkja möguleika textílprentunar
- Geta tengt stafræna þróun við eigin starfsemi
- Vera betur í stakk búinn til að nýta nýsköpun í verkefnum
Aðrar upplýsingar:
Efnið byggir á samantekt Sæmundar Freys Árnasonar á nýjungum sem kynntar voru á alþjóðlegu FESPA ráðstefnunni í Barcelona, þar sem fremstu sérfræðingar heims í prent-, merkinga- og sjónrænum samskiptum kynntu nýjustu þróun.
Starts
2. Sep 2026Type
On siteShare
Send message
Share
Copy URL
Categories