
Iðan fræðslusetur

Nýjungar í auglýsingaprenti
Á þessum fyrirlestri verður kynnt nýjasta þróun og tæknilausnir í skiltagerð, prentun á bylgjupappa og filmuásetningum. Þátttakendur fá innsýn í ný efni, aðferðir og möguleika sem eru að móta auglýsingaprent í dag. Annar fyrirlestur verður haldinn þar sem áherslan verður frekar á persónumerkingar og textílprent.
Fyrir hverja:
Fyrirlesturinn hentar öllum sem starfa við eða hafa áhuga á prentiðnaði, skiltagerð, merkingum, textílprentun og umbúðagerð og vilja fylgjast með nýjustu straumum og nýta þá í sinni starfsemi.
Markmið:
Markmið fyrirlestursins er að kynna nýjustu þróun og tæknilausnir í skiltagerð, prentun á bylgjupappa og filmuásetningum. Þátttakendur fá innsýn í ný efni, aðferðir og möguleika sem eru að móta auglýsingaprent í dag.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Helstu nýjungar frá FESPA ráðstefnunni
- Þróun í skiltagerð og stórprenti
- Prentun á bylgjupappa og umbúðir
- Ný efni og yfirborðslausnir
- Framfarir í filmuásetningum og merkingum
- Hagnýt dæmi um notkun nýrrar tækni
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja nýjustu lausnir í skiltagerð og umbúðaprentun
- Hafa yfirsýn yfir þróun í efnum og tækni
- Geta metið hvernig nýjungar nýtast í eigin verkefnum
- Skilja möguleika filmuásetninga og yfirborðsmerkinga
Aðrar upplýsingar:
Efnið byggir á samantekt Sæmundar Freys Árnasonar á nýjungum sem kynntar voru á alþjóðlegri FESPA ráðstefnunni í Barcelona, þar sem fremstu sérfræðingar heims í prent-, merkinga- og sjónrænum samskiptum kynntu nýjustu þróun.
Starts
1. Sep 2026Type
On siteShare
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Iðan fræðslusetur