Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Ítalska 3

Á þessu námskeiði tölum við enn meiri ítölsku!

Þú heldur áfram að þjálfa skilning og talað mál og byggja upp orðaforða og málfræði á fjölbreyttan hátt.

Um námskeiðið

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa grunn í ítölsku eða hafa lokið ítölsku 2.

Þú heldur áfram að byggja upp orðaforða og þjálfa málfræði á fjölbreyttan hátt en með sérstakri áherslu á skilning, talað mál og samskipti á ítölsku

Áherslur

  • Að læra enn betur að tjá þig og eiga samskipti á ítölsku
  • Að byggja upp enn meiri orðaforða sem nýtist vel í daglegu lífi
  • Að halda áfram að þjálfa málfræði á hagnýtan hátt
  • Að dýpka skilning á menningu og lífsháttum ítölskumælandi landa
  • Við lok námskeiðsins muntu búa yfir aukinni færni til að eiga samskipti á ítölsku og getu til að nota hagnýtan orðaforða af meira öryggi.
Starts
11. May 2026
Type
On site
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories