

Hagnýtar gervigreindarlausnir
Vertu með í gervigreindarbyltingunni.
Lærðu að nota gervigreind á hagnýtan og öruggan hátt án þess að týnast í endalausum möguleikum.
Þetta er tveggja daga, verklegt námskeið sem byggir upp sjálfstraust og sjálfstæði í notkun gervigreindar. Þú færð skýra undirstöðu í gervigreindarlæsi og lærir að beita gervigreind í fjölbreyttum verkefnum í starfi og daglegu lífi.
Kennt er fyrst og fremst á ChatGPT en þekkingin yfirfærist auðveldlega yfir á Copilot, Gemini, Claude og aðrar spunagreindarlausnir.
Styrkleikar námskeiðsins:
- Kennsla frá raunverulegum sérfræðingum sem vinna við að innleiða gervigreindarlausnir í fyrirtæki.
- Lærir spunagreindarlæsi: eftir námskeiðið munt þú skilja tæknina betur, hverjar takmarkanirnar eru og hvernig þú stýrir henni á öruggan hátt.
- Blandað fyrirkomulag: fyrirlestrar og æfingar til skiptis, með nægum tíma fyrir spurningar og aðstoð.
- Reglulegar uppfærslur á námsefni í takt við þróun gervigreindarinnar.