
Iðan fræðslusetur

Gervigreind í starfi iðnaðarmanns
Hagnýtt hálfs dags námskeið fyrir iðnaðarmenn sem vilja læra að nýta gervigreind í daglegu starfi. Þátttakendur kynnast einföldum og gagnlegum leiðum til að nota gervigreind meðal annars við upplýsingaleit, tilboðsgerð, skipulag og samskipti.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað iðnaðarmönnum, bæði sjálfstætt starfandi og þeim sem starfa hjá fyrirtækjum, sem vilja nýta gervigreind til að einfalda verkefni, spara tíma og bæta vinnubrögð. Ekki er gerð krafa um fyrri þekkingu á gervigreind.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist hagnýta færni í notkun gervigreindar sem nýtist þeim í starfi. Áhersla verður lögð á að þátttakendur læri að nota aðgengileg gervigreindartól á markvissan og ábyrgan hátt.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Grunnatriði gervigreindar og notkun hennar í iðngreinum.
- Notkun gervigreindartóla á borð við Claude.
- Upplýsingaleit, tilboðsgerð, skipulag og samskipti.
- Tengingar við tölvupóst, dagatal og önnur gagnleg kerfi.
- Hagnýtar æfingar, ábyrg notkun og persónuvernd.
Að loknu námskeiði á nemandi að geta:
- notað gervigreindartól við dagleg verkefni;
- sett fram skýrar og markvissar fyrirspurnir;
- nýtt gervigreind við upplýsingaleit, skipulag, tilboðsgerð og samskipti;
- metið niðurstöður og notað tæknina á öruggan og ábyrgan hátt.
Aðrar upplýsingar:
Þátttakendur á námskeiðinu þurfa að taka með sér tölvu
Kennarar á námskeiðinu eru Hjörtur Sigurðsson sérfræðingur í gervigreind, og Axel Axelsson, nemi í pípulögnum. Saman tengja þeir þekkingu á gervigreind við hagnýta reynslu og raunveruleg verkefni úr starfsumhverfi iðnaðarmanna.
Starts
18. Nov 2026Type
On siteTimespan
1 timesShare
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Iðan fræðslusetur
PAGO byggingarsteinar
Iðan fræðsluseturOn site19. Nov
Krosslímdar timbureiningar
Iðan fræðsluseturOn site19. Nov
3D skönnun og endurgerð hluta
Iðan fræðsluseturOn site16. Nov
AutoCAD og AutoCAD LT grunnnámskeið
Iðan fræðsluseturOn site18. Nov
Eldsmíði í Höfnum
Iðan fræðsluseturOn site13. Nov
Trérennismíði
Iðan fræðsluseturOn site14. Nov
Brunaöryggi við byggingaframkvæmdir
Iðan fræðslusetur17. Nov
Tequila & Mezcal Masterclass
Iðan fræðsluseturOn site13. Nov
Svansvottaðar byggingar
Iðan fræðsluseturOn site12. Nov
HACCP 2 – Innra eftirlit og ábyrgð
Iðan fræðsluseturOn site10. Nov
Hjólastilling
Iðan fræðsluseturOn site11. Nov
Varðveisla eldri húsa
Iðan fræðsluseturOn site13. Nov
Tilraunaeldhúsið - Nútíma matargerðalist
Iðan fræðsluseturOn site11. Nov